Gutti gaur bloggar
MYNDIR
09.09.2007 22:30:02 / stefan

STRÁKAHELGI

Jæja þá er ný vinnuvika að byrja. Helgin búinn að vera rosagóð við strákarnir erum búnir að vera einir heima og það er bara gaman ekkert suð í húsinu hahahaha. Einmitt árleg réttaferð hjá vinnukonuni (mæðraorlof) var/er um helgina þ.e.a.s. frá föstud. og kemur aftur heim á mánudagskvöld. Okkur hefur ekkert leiðst búnir að gera helling og ekki neit búið að vera allgjör slökkun borðað þegar við erum svangir sofnað þegar við erum þreyttir og slakað á hrein snild. Ég og Brynjar fórum í 2ja tíma hjólatúr í dag og síðan fórum við feðgarnir í Fellsmúlann í kvöld okkur var boðið í mat og fengum líka þessa frábæru kjötsúpu með öllu tilheyrandi BARA GOTT takk fyrir okkur. En það verður að fara snemma að sofa í kvöld skóli og vinna á morgun .......... bless í bili .......

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 21:43:12 / stefan

vikan

Jæja þá er ein enn vikan að klárast vá hvað þetta líður ..... á laugardaginn fórum við í bíltúr fórum á Akranes á Hálandaleika eftir klukkutíma rúnt að leita hvar leikarnir væru fundum við staðinn nánar tiltekið skóræktin á Akranesi. Þar voru bara tröllkarlar að sýna hvað þeir væru sterkir og töff en þeir ná mér ekki hahhah Brunuðum heim komum við á American style sem er bara GOTT og pínu óholt. Fórum heim og ekkert að gera fórum aftur af stað og fórum í Sandgerð þar var Sandgerðishátíð mikið fjör og húllumhæ. Komum heim um miðnætti. Vikan búinn að vera á hvolfi í vinnu já heill hellingur að gera vinna fram fram á kvöld mér fynst það ekki leiðinlegt. Gaman að vera komin á fullt eftir annars gott og skemmtilegt sumar. Nú framundan er skemmtilegasti tími ársins haustið og það sem því fylgir .......... meira seinna ........

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 00:23:01 / stefan

3JA FÆRSLA HAHAAHAHHA

Jæja jæja þar kom að því rúmt ár síðan síðast. sumarið búið að vera gott og hvað fór í 2ja vikna frí með fjölsk... leigði mér hjólhýsi sem er BARA hrein snild leiðinlegt að ferðast með það en gott þegar maður er stop og að dvelja í er ekki að fara að kaupa svona græju. En hvað á þessum 2 vikum var farið vestur. Við höfum ekki komið þangað ussssss...... dagur 1 keyrt í Stykkishólm og gist þar ferjan Baldur tekin yfir Breiðafjörðinn og stefnan tekinná Tálknafjörð þar vorum við frá föstudegi til þriðjudags mikið keyrt og skoðað m.a. farið í Selárdal sjá þetta merkilega safn Samúels frekar ómerkilegt en ... horft heð að Uppsölum þar sem Gísli átti heima þessi gamli sérvitringur sem var frægur þegar Ómar Ragnarsson heimsótti hann þegar hann var meðþættina sína Styklu. Fórum í Krossadal gönguferð dagsferð. Tókum bát frá Bíldudal og sigldum inní Friðþjófsfjörð og farið þar í land og fórum í 4ra tíma göngu á slóðir Gísla Súrssonar frábær ferð dagsferð......... síðan var ekið frá Tálknafyrði og stefnan tekin á Isafjörð upssss 6 tíma keysla meðalhraði 45 km hrikalegir vegir og erfiðar heiðar upp margar brattar brekkur ráðlegg engum að fara með hjólhýsi þessa leið ........ en við fengum frábært veður það reddaði þessu og jú svo var maður í fríi. Súðav ík, Þingeyri, Isafjörður, Flateyri, Suðureyri og Bolungarvík afgr.....fór að vísul´ka í Skálavík sem er fyrir innanBolungarvík þar sem amma í sveitinni er fædd hefði mikið heyrt um þann stað virkilega gaman að koma þangað .... síðan lág leiðin að vestan keyrðun djúpið og fórum yfir Þorskafjarðarheiði borðuðum í Bjarkarlundi. Tókum lagið í Búðardal Er ég kem heim í Búðardal......... gistum í Borgarnesi.Keyrðum þaðan í rvk stopað heima í ca 3 tíma þurfti að redda lykli af hjólhýsinu Arnar braut lykilinn í skránni það reddaðist og stefnan tekin á okkar árlega fjölskyldunót sem haldið var á Heimalandi rétt við Seljalandsfoss það var bara gaman komum öll heil heim og skilaði hjólhýsinu líka heilu eftir þetta ferðalag. Ætla ekkert að flýta mér vestur á næstunni allavega ekki á meðan vegirnir eru eins og þeir voru ótrúlrgt að keyra þarna og það er 2007 en svona er þetta...... gott í bili ætla að reyna aftur að blogga pínu meira ....þarf að vísu ekki mikið til ....... later .......

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 03:32:53 / stefan

DAGUR 2 hahahahah

sunnudagurinn 6 ágúst um versló erum heima ég og co vorurm að koma úr 14 daga fríi útilrga fellihýsi Nei takk heima stofuhiti og næs já takk. vorum i 14 daga útiegu fórum hringinn þjóðvegur 1 fengum flott veður (myndir og ferðasaga seinna). Er heima að njóta þessa að vera til draga andann inn og út .... á morgrun 07 ágúst á Helga "konan" afmæli er að baka og gera klárt hún er farin að sofa upps... en ég redda þessu .... jæja ofnin að væla eitthvað já, kakan tilbún kveð að sinni ........... einn að baka vandræðijavascript:editor.insertHTML(':o');

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 22:02:55 / stefan

Dagur 1 punktur

Kominn með síðu.... jibbíííí

» 2 hafa sagt sína skoðun